|
|
05.11.2008 22:23:57 / katrin
Búin að fá ógeðslega leið á þessu bloggi Komin með nýtt...
http://katrinig.bloggar.is/
Er að vinna í að gera þetta almennilegt hehe
»
04.07.2008 00:08:37 / katrin
God mig langaði barað tjá mig um þessi nýju lög. Hvað er í gangi? Má bara allt nú til dags? Meina, fyrsta samkynhneigðrabrúðkaupið var í gær, hvert er veröldin að fara?? Haha neiii djóók Þetta var yndislegur dagur í alla staði. Og óeðlilega fáránleg tilfinningað horfa uppá litlu systur sína gifta sig, og koma svo bara í stöð2 hehe. Celeb!!! En skvísurnar voru báðar í æðislegum kjólum, veislan var yndislega krúttleg og flott með frábærum mat, Brynja krútt söng svo fallega í kirkjunni...svo þegar ég mætti kallar presturinn mgi inn til sín. Við förum þarna saman afsíðis og stelpan hélt hún ætti von á einhverju góðgæti heheh, en shit, segir hann mér ekki bara að ég sé svaramaður!!! God ég hélt ég fengi slag hehe...var nokkrum sinnum alveg að fara að gráta í kirkjunni, en barðist af öllu afli við það, enda vissi ég að ef ég léti gossa myndu stelpurnar gera grín af mér forever hehe, þá fór ég að sjálfsögðu að asnast eitthvað og taka myndir af hárgreiðslum og svona til að herða mig hehe, tók síðan mynd af einum gömlum kalli þar sem hnakkaspikið lafði smá niður fyrir kragannn hehe, svo ef maður súmaði sá maður að hann var með eina væææææna vörtu beint fyrir ofan...ekki viljandi gert en þessi mynd vakti ansi mikla lukku þarna í kirkjunni, og urðum við á aftasta bekk að leggja alla okkar krafta í að fara ekki að hlæja:/ Ótrúlegur dagur og ég vona að fleiri hafi skemmt sér eins og ég=)
Annars var ég að fatta eitt hehe, gleymdi alltaf að taka það fram að í flugvélinni á leið til Tene heyrist í Ingó að þarna sé nú Íslenski Bachelorinn. Jújú þetta var hann á ferð með óléttri konu. Ok með það..þekktum kauða og svona...Svo seinna einhverntíman þegar við erum úti að borða þarna, heyrsist ekki í tuðrunni: *Innsogið á milljón* Þarna kemur Steingrímur!! Við Anna lítum við...nei nei er það ekki Bachelorinn á röltinu!!! Ingibjörg vissi bara hvað hann hét hahaha ég held að ég geti nánast fullyrt fyrir okkur báðar að það kom smá piss hahah Erum enn að hlæja að þessari setningu hehe, og ég meira að segja pínu núna....
Svo vil ég bara minna fólk á að Írskir dagar eru um helgina, og vona ég að sem flestir skemmti sér vel, allavega ætla ég að gera það
KV: KATRÍN INGA GÍSLAD, SVARAMAÐURP.s. Leon á Tene er hættur með kæró jíha
»
28.05.2008 23:07:04 / katrin
Jájá ég er ad blogga á Tenerife..stelpurnar eru farnar ad sofa og eg ákvad ad vera lúdi og hanga nidri í lobbíinu á netinu hehe  Annars er tessi ferd búin ad vera mjog fín. Erum búnar ad fara í einhverja syglingu ad skoda hvali og hofrunga, sem var audvitad bara geggjad. Hofrungarnir voru med geggjada sýningarstaela og svona hehe algjorir kjánar  Svo er djammad nánast á hverju kvoldi, med misfallegum árangri heheh og audvitad erum vid bunar ad vera dópandi og ad selja okkur eins og enginn sé morgundagurinn  Erum búnar ad kinnast nokkrum Íslendingum hérna, sem btw fóru med okkur á strippstad tar sem vid stelpurnar gátum ekki farid tómhentar út, og fengum okkur einkadans hehehe. Skemmum okkur grídarlega vel tarna, en vá hvad etta er orugglega erfid vinna. Dansa alltaf tad sama fyrir folk inni klefa pojj.... Ég er ekkert ordin brún, en Imba er med svartan maga og Anna er audvitad eins og surtur  Ég er reyndar líka svo mikil kelling ad mér leidist svo í sólbadi, finnst tad svoo heitt og erfitt eitthvad, hehe svo finnst mér sjórinn og sundlaugin allllltof kold ;P Heyrdu haldidi svo ekki ad eg hafi séd fokking heitasta gaur allra tima. Gud minn godur sko, hann er songvari a einhverjum rosa rómó stad. Song svo fallega ad vid vorum allar alveg awwww. Svo á fost og lau var opnad annad herbergi tar sem hann var DJ, og jesús almáttugur og jósep, hann var svo sjúklega foxy helvitid ad ég timdi varla ad fara ad pissa svo eg mundi ekki missa ur eina sek af tvi ad horfa á hann....og hann er meira ad segja breskur hehe, eg hef alveg fengid nytt álit á bretum eftir tetta  En audvitad er kvikindid trulofad, og tad bara flottustu gellu ever hehe. Spurning um ad fa einhvern gaur med mer i ad raena teim bara  Vid stelpurnar erum líka búnar ad fá ansi margar módganir hérna. Ég var spurd hvort eg vaeri ólétt!! Ingibjorg er talin ensk (ljót tá eda?) og einhver geggjad mjór gaur sagdist vera med staerri brjóst en Anna. Tessir spanjólar sko!!! Erum lika komnar med falleg nikk name hérna. Imba hestur, Anna badgirl og Kókaín Kata. Gífurlega smart En ég sakna fallega Ísaks míns svo mikid. Er alltaf ad skoda myndbond af honum i simanum hennar Imbu. Get sko ekki bedid eftir ad koma heim og knusa hann alveg i klessu...vona samt ad hann tekkji mig eftir allan tennan tima plus ad eg er med flettur i harinu sem gera mig ansi skritna hehe En tangad til seinna.... Ble ble pípúl :*
»
09.04.2008 18:16:13 / katrin
Hvað er eiginlega í gangi með þetta land okkar...byrjaði að snjóa í gærkvöldi og snjóaði liggur við i alla nót.....allavega var allt á kafi í morgun. Svo er bara búið að vera bongó blíða í allan dag  Varð að afklæða mig á trocadero áðan svo ég léti ekki lífið úr hita
»
03.04.2008 21:25:47 / katrin
Jáhérna, ég hef ákveðið að blogga. Undur og stórmerki gerast enn hehe. Enn shit fokk hvað Mugison er ógeðslega heitur sjæse!!! Ég var einmitt að skoða brúðkaupsblaðið sem fylgdi með Nýju Lífi núna, og fann kjólinn minn, og greiðsluna...en var í smá basli með að finna brúðgumann, og þar sem Mugison er svo hræðilega ástfanginn af konunni sinni þá er bara að setja sig í gang, og finna einn vænann Ísak Hrafn er að verða 1 árs eftir 4 daga, er það eitthvað djók bara eða???? Erum að pæla í að hafa smá teiti á sunnudaginn, en þá bara eitthvað smá kaffi fyrir ömmur og afa og þannig. En guð, Ísak er svo fallegur að ég gæti stundum farið að gráta þegar ég horfi á hann....svo segja allir að hann sé alveg eins og pabbi sinn. Get nú ekki sagt að mig vökni um augun yfir fegurðinni á honum hehe, en kannski someday Ísak sagði mér svo að skila til allra sem ætla að gefa honum afmælisgjöf að honum langar rosalega í hvolp, og peysu úr júniform sem passar á mömmu hans=) Annars er allt frekar fínt að frétta af okkur sko...íbúðin mín er alltaf í rúst sama hvað það er tekið oft til í henni, en svona er þetta víst þegar maður er með ungling og ungabarn á heimilinu!! Ég hef svo ákveðið að skella mér á Tenerife með Önnu Kristínu Jens og Séra Ingibergi, og vá það verður bara nice að komast í sólina og slaka á í smá tíma. Engar áhyggjur og ekkert. Ísak á svo mikið af ömmum og öfum krakkinn að það væsir ekki um hann á meðan Ég og Ingó vorum búnar að plana að skella okkur í brasilískt, en fengum eiginlega betri hugmynd. Söfnum frekar alveg sjúklega mikið og látum brúskinn standa út ú skílunni. Stöndum svo allar saman í röð, Anna í fýlu, ég skellihlæjandi og Ingó að rembast...hversu fáránlega heitt team ha?? hehe Er búin að sofa alveg fáránlega illa undanfarið, datt meðal annars útúr rúminu mínu um daginn í einhverju móki, og er öll lemstruð eftir það:/ og sofnaði bara í listatíma áðan hehe konan var ekki sátt og klagaði í lækninn minn heheheh, sem hringdi skellihlæjandi í mig og skammaði mig ekkert sem betur fer Fékk bara enn ein svefnlyfin og vonum að það virki. Ég er líka drullufúl yfir að despó sé i einhverri pásu þessa dagana...þoli ekki svona plebbaskap, þegar maður er kominn inní þetta er ekkert grín að kveljast hérna og fá ekkert despó Þá er bara C.S.I. Miami á eftir, með pirrandi rauðhærða skítalabbanum, en maður gleymir honum þegar maður horfir á hann Eric minn Leiter hommar...
»
29.01.2008 21:13:58 / katrin
Jæja, kannski kominn tími á að skrifa eitthvað hér þar sem það er alltaf nóg af liði sem skoðar. En Jólin voru frekar einmannaleg án Tásunnar minnar, en ég var þó auðvitað með Ísak gullmolann minn. Við fengum alveg fáránlega marga pakka og ég held að ég hafi verið að opna eitthvað yfir 40 pakka allt í allt!! Mygod!! Þó að það sé ljótt að segja það þá fann ég samt fyrir smá létti á áramótunum að eiga ekki hund þar sem Tása var alltaf eins og hrædd kanína að upplifa herstyrjöld í svona 3 vikur um þetta tímabil...þannig að þetta var eitthvað rólegt hjá mér. Ísak svaf allan tíman, og rumskaði ekki einu sinni við þessar sprengjur hehe. Við Aný tókum samt hörkudjamm á þetta og vorum að til 12 á hádegi..frekar hressar ;P Sumir fengu smá sugar, en aðrir ekki og voru vælandi yfir því í marga tíma hehe ræðum það ekkert meir Annars er mjög skrítið að hugsa að það sé bara komið 2008..vá hvað mér finnst stutt síðan ég fermdist árið 2000 hehe. Og shit hvað mér fannst ég vera fullorðin þá maður hehehe, veit ekki alveg hvað ég var að pæla..finnst ég ennþá alltof ung til að meiga keyra bíl og svona En nú fer að koma að þessu..gengur náttúrulega ekki að vera einstæð móðir með ekkert bílpróf hehe. Fyndið samt að fyrir ári síðan var ég svo drulluólétt, lifði til skiptis í baðkarinu eða pissandi..og gat yfir höfuð ekki hreyft mig fyrir stærstu bumbu í sögunni bara, og núna á ég bara risastórann gullmola sem gargar úr frekju á mig. Þetta er bara búið að vera svo fáránlega fljótt að líða að mér finnst bara að ég hafi misst eitthvað úr..Síðasta ár var samt æðislegt sko. Ísak Hrafn súkkulaði snúður fæddist í apríl og þó að allt hafi farið í fokk við það voru svo margir sem studdu mig, og þessar vinkonur mínar og þá sérstaklega Ingó minn sem voru hjá mér nánast alla daga...OMG ég veit ekki hvar ég væri án allra Það var æðislegt veður í sumar og ég efast um að hægt sé að vera í barneignafríi á betri tíma Í sept var ég svo bara allt í einu á lausu eftir að hafa verið harðgift í 5 ár!! Viljiði pæla 5ÁR!!!! Það er fáránlega mikið hehe. Erum búnað búa hjá ömmu og afa síðan þá, og flytja með þeim og allt..en erum loksins að komast útaf fyrir okkur=) JEII Ég, Jói og Ísak erum semsagt að fara að fá íbúð núna á föstudaginn og ég gjörsamlega get ekki beðið hehe. Ísak verður í pössun alla helgina þannig að við getum bara verið snögg að koma okkur fyrir...eða eins snögg og við nennum Ég vil meina að það verði innflutningspartý föst og lau.. en reyndar gæti það verið án húsgagna, en hverju skiptir það á meðan það er áfengi hehe Sjáum hvað setur bara... Heyrðu svo er árgangsmót 16feb. Get bara ekki beðið eftir því heldur, er alveg farin að telja niður sko Rosa margir búnir að boða komu sína og verður það ekkert nema stuð að hitta alla=) Ég á svo afmæli núna 28 feb, og tilkynni ég það hér með ágætisfyrirvara svo fólk geti gefið sér góðan tíma í að velja gjöf...veit að sumir eru búnir að vera að safna alveg síðan í fyrra, enda væntist ég einskis minna af fólki Heyrðu já...Arnar er svo bara stungin af á Akureyri og skil ég ekkert í honum hehe. Við Ísak heimsóttum hann í nokkra daga um daginn, og er litla gerpið bara að hafa það ansi gott þarna í þessum brekkumesta bæ í heimi. Hélt ég lifði bara ekki af að fara í göngutúr þarna hehe. Og svo svona í lokin vil ég minna ykkur á lesendur góðir að tjekka á http://www.gjugg.is/ Frekar heitt sko  En nú er ég farin að fá mér frískt loft.. Síjúpíjú Katrín blámannaböllur Hansen
P.s myndir fyrir ykkur sem munið ekki alveg hversu hot ég er 

»
24.11.2007 16:37:42 / katrin
Hvíldu í friði elsku gullið mitt....ég sakna þín svo Takk fyrir þessi 4 ár sem við áttum saman :* 
 







»
14.11.2007 16:38:37 / katrin
Já nú er ég ein heima með molanum mínum og hundunum að horfa á friends...alltaf jafn viðburðaríkir dagarnir hér á bæ hehe. Reyndar er alltaf jafn gaman að fylgjast með Ísak því hann er að læra eitthvað nýtt á hverjum degi. Alltaf að klappa saman lófunum og svona hehe algjört krúttí Annars erum við að fara að flytja núna bráðlega, annaðhvort með ömmu og afa í nýtt hús hérna rétt hjá, eða í einhverja íbúð....sjáum hvað setur. Er svona mun spenntari að komast í íbúð og getað gleymt að slökkva ljósin án þess að fá gargið yfir mig og svona hehe. Svo kemur Jói þá líklega með okkur og ég get þá notað hann til að brjóta saman fyrir mig og ryksuga eða eitthvað Svo er stefnan sett á eitthvað tjútt um helgina. Arnar er búnað lofa að vera með drenginn, og ef honum dettur alltíeinu í hug að vilja gera eitthvað, þá verður hann bara að redda pössun ;P verð alveg snældu vitlaus ef að Ingó beilar á mér..tek það ekki í mál. Ingó ef þú gerir það þá mæti ég heim til þín og raka bakið á pabba þínum einsog þú hefur séð fyrr!!! Búið að vera ansi mikið fjör síðustu skipti sem við höfum gert eitthvað þannig að ég geri miklar væntingar fyrir þetta skipti... Set hérna eina mynd sem ég stal einhversstaðar til að minna á góðar stundir 
»
03.10.2007 18:00:05 / katrin
Kræst ég
bara verð að láta þetta hérna inn...er búin að vera að pissa
í mig stanslaus síðan ég sá þetta 

Reyna að
vera VENJULEGAR á mynd....tóks svona merkilega vel
(ogég með þessar skrítnu kúlur útur
andlitinu!!!)
Og svo...hvað
er málið með þetta?????!!!!!

Eru bara
engin takmörk yfir hversu fyndinn er hægt að vera
hehehehe
»
02.10.2007 12:35:46 / katrin
Jæja. Það er allt gott að frétta hér á bæ. Við Ísak erum flutt til ömmu og afa og fáum sko aldeilis þjónustu hér. Amma lætur prinsinn alltaf í bað á kvöldin og svo er hann farinn að fá graut og svona Ótrúlega duglegur. Eltir hundana útum allt og vælir ef maður sest við matarborðið útaf hann vill líka fá mat hehe Hann er farinn að sofna á milli 9 og hálf 10 og sefur til 7 á morgnanna hehe. Jájá frekar nice sko En nú er Erna bara aaaalveg að fara að koma heim. Og loksins til að vera!! Jájá hún er sko að fara að flytja heim með strákana, en Orri kemur seinna greyið. Og ekki nóg með það, heldur kemur hún með bumbu heim!!!!! Hversu öflug er hún þessi litla mamma  Ég er með svona ekta flensu i fyrsta skiptið i hálft ár núna...liggur við bara nice miðað við öll hin veikindin sem ég fékk í kjölfarið af meðgöngunni og fæðingunni hehe. Heyrðu svo var Veiðíhúsapartý um daginn og auðvitað ákvað ég að skella mér, og Ísak var hjá pabba sínum. Veit ekki alveg hvað skeði, en án þess að ég vissi af var ég komin á trúnó við mömmu hennar Önnu inni á klósti, með risa kúlu á hnakkanum, og ekki ælandi!! Hehe hressilegt. Var svo verið að bjóða mér í afmæli á laugardaginn, veit ekki hvernig ég sansa pössun þar sem að Arnar er í útlöndum, en það reddast vonandi, enda drengurinn ekkert nema engill En æj aumingja Britney litla, búin að missa forræðið yfir börnum sínum. Hvers vegna í óksöpunum er fjallað um það í fréttum á Íslandi? Hehe þetta er bara enn ein fræg manneskjan sem nennir ekki að hugsa um börnin sín...vorkenni henni samt smá, hún fékk aldrei séns greyið. Eins og þegar hún eignaðist fyrri strákinn voru ljósmyndarar í hverju horni að bíða eftir mistökum.. En ég er farin að klæða mig á meðan litli molalingurinn sefur..sumir eru neflilega að fara að fá sér pinna í tunguna!! Ómæ 
»
26.08.2007 14:30:46 / katrin
Jæja ÍA/KR á eftir. Vona svo að við vinnum. Vona sko að Arnar komi inná og skori eina markið og það verði geggjað flott. Eða hann skori alveg 10 mörk og allir verði alveg vááá....Þá get ég monntað mig geggjað og sagt jááá þessum er ég að sofa hjá. Heh, og allir övunda mig geggjað. Ekki mikið að frétta hér á bæ eins og venjulega. Við Ísak Hrafn skelltum okkur í bæjarferð með Ingó okkar og versluðum ótrúlega mikið. Fórum fyrst til Hrafnhildar og Ísak fannst hún ótrúlega spennandi Svo fórum við að versla... Ég bara buxur og náttbuxur á mig, en Ísak fékk alveg helling af samfellum og buxum og peysum og allt. Ingó splæsti líka í geggjaðar buxur handa honum. Erum nú heppin að eiga svona góða vinkonu Hittum líka Gerðu í bænum og fórum með henni í nokkrar búðir. Það var frekar langdregið því ég hef aldrei vitað manneskju sem skoðar hverja einustu flík í hverri einustu búð sem hún fer í hehehe Svo kom Anna Kristín líka til okkar og var rosa dugleg að leika við Ísak. Hann á sko eftir að kunna á kvenfólkið þegar hann verður stór því það er ekkert nema kvenfólk að hnoðast með hann alla daga Heyrðu já svo er molinn bara kominn með tönnslu!! Svo erum við að fara að passa húsið hennar ömmu á meðan hún er í útlöndum. Ótrúlegt stuð því við fáum að passa Bonný og Tásu okkar, og Jóa... og sennilega Daníel líka...nóg að gera Svo er auðvitað busavíxlan í næstu viku hehehe get ekki beðið eftir að sjá Jóa og Eyju í því. Finnst ég hafa verið busuð í fyrra bara, en það eru komin 5 ár síðan. Hversu sorglegt er það hvað maður er orðinn gamall Var einmitt að pæla í þessu um daginn. Maður er svo ungur og sætur alveg þangað til maður er 25 ára. Þá er maður svona á hátindinum, en um leið og maður verður 26 þá er maður orðinn gamall og allt fer niður á við....nema maður sé Hallie Berry eða einhver þannig...... En það er ekkert meira að segja í þessari færslu þannig að henni er hér með lokið. Set samt mynd með því annars er ekkert gaman að þessu. 
Litla mús hjá pabbaling Aðeins búinn að stækka 
»
02.08.2007 18:14:51 / katrin
Hvað kallast það að finnast táfýla af öðrum ekki vond? Ekki góð
kannski, en nær því að vera góð en vond?
Flokkast það undir hreina og sanna ást á viðkomandi, eða hreint
út sagt viðbjóð?
Ég er líka búin að pæla mikið í hvers vegna fólki finnst tásur
ógeð...og hvers vegna fólki finnst naflar vera ógeð líka...er þetta
eitthvað ógeðslegra en puttar eða?
Annars er ósköp lítið búið að gerast i okkar lífi hér. Þetta
morð sem var á sunnudaginn er náttúrulega búið að setja smá skarð í
hjarta manns, og ég veit að þó ég tendist þessu ekki þá liði mér
samt illa yfir þessu. Maður getur ekki einu sinni reynt að skilja
hvers vegna einhver gerir svona, eintóm frekja að hugsa ekkert útí
alla sem koma að svona máli. Bæði manns eigin aðstandendur, og
aðstandendur fórnarlambsins....og hvað þá þeirra sem koma þarna
inná milli...
Er ekki heldur alveg að fatta hvers vegna DV sér tilgang í
því að birta nöfn einstaklinganna áður en sólarhringur er liðinn
frá atburðinum. Aðstandendur eru að frétta af svona löguðu á netinu
og þannig. Skil ekkert hvers vegna fjölmiðlar geta ekki bara slakað
sér aðeins og leyft fólki að átta sig á hlutunum
Sorglegt þetta líf 
Annars eru allir að fara í ferðalög núna um versló og stelpurnar
að skella sér á Þjóðhátíð. Þær hunsuðu það að ég var búin að banna
þeim það þessir ormar. Tek í þær þegar þær koma heim 
Eitt í sambandi við verslunarmanahelgina sem ég er ekki alveg að
fatta. Þetta er nú ein mesta ferðahelgin á Íslandi og allir virðast
vilja fara eitthvað, hvort sem það er að slaka á með fjölskyldunni
eða djamma sig í tætlur, og allt þar á milli. En það sem ég er
alveg steinhissa á er það að á tjaldsvæðunum á Akureyri er bannaður
aðgangur fyrir fólk á aldrinum 18 til 23. Semsagt ef að fjölskylda
með 3 börn vill fara þangað og elsta barnið er kannski 18, mætti
það þá ekki fara með fjölskyldunni sinni og gista á tjaldsvæðinu??
Yrði það bara að vera heima eða hvað?? Eða ég og Arnar? Sem
erum nú orðin fjölskyldufólk..við mættum bara ekki fara
þangað...meiri fjölskylduskemmtunin segi ég nú bara  
Læt myndir af krúttunum mínum fyrir ykkur vegna þess að það kom
engin mynd síðast.
Fallegastur :* (þessi augu váá)
Og svo.......

kynþokkafyllstur :* (Þetta hár vááá)
»
17.07.2007 08:49:26 / katrin
Við Ísak erum hérna í stofunni í rólegheitunum eftir að barnið
svaf frá 10 til 20 min í 8 án þess að vakna!!! Ómægad hvað hann er
yndislegur Svo þegar hann vaknaði opnaði hann bara augun og
byrjaði strax að brosa, æðið litla Ég þarf svo bara að bíða í
svona klst í viðbót og þá getum við lagt okkur aftur hehe ;P
Smá kjánahrollur hefur gert vart við sig. Ekki vegna þess að
Unnur Steinsson er ólétt og það er gert að rosa frétt, og ekki
heldur vegna forsíðufréttarinnar ,,Dóttir okkar grét" framan á
séð og heyrt.....nei heldur vegna hundskrílisins sem sagður var
drepinn af einhverjum gaurum á bíladögum. Vá mér var alveg illt í
maganum í tvo daga þegar ég heyrði það. Vitni gáfu sig fram og
alles. En nei, er ekki litli kútur bara fundinn og allt í lagi með
hann. Ég vona svo sannarlega að þeir sem nafngreindu einn gaurinn í
þessu og hótuðu honum öllu illu byðjist afsökunar. Skil að
sjálfsögðu reiði fólks, en margir gengu yfirdrifið langt i þessu og
úff, ef ég er með kjánahroll, hvernig líður þeim þá hehehe
Vona bara að gaurarnir séu saklausir og ekkert annað dýr hafi verið
ofan í þessari tösku 
Hver býr samt til svona sögu ef þetta er eintómur uppspuni.
Sjæse hversu illa innrættur er maður?? ekki jafn mikið og sá sem
átti að hafa troðið dýri ofan í tösku o sparkað í það til dauða, en
samt...ansi nálægt að meiða mannorð annara svona. Fyndna er samt að
þessi gaur er bara orðinn frægur á Íslandi hehehe ekki erfitt það
nei  
En hvað er að ske með sumarið hérna..endalaus sól og blíða alla
daga. Ég reyndar er búnað vera frekar þroskaheft og hanga mikið
inni Nenni aldrei ein í göngutúr, og Ísak er líka frekar pirripú
í vagninum þessa dagana, er alveg trylltur í munninum. Og ég meika
bara ekki útá pall með hann...er svo hrædd um að það komi geitungur
og stingi hann Er ég nokkuð paranójuð mamma?? ;P hehe Þó það séu
fáir geitungar bún að sjást þá kom samt einn inn um daginn Hann
var samt mjög lítill og mjór miðað við geitung og það heyrðist
ekkert suð í honum þannig að ég fattaði ekkert fyrren hann var
komin alveg að mér Sem betur fer bjargaði Arnar okkur og veiddi
hann í glas fjúff...Svo sá ég líka annan útá palli og er enn frekar
smeik við pallinn hehe
En stelpur við þurfum svo að fara að taka vídjókvöld..bara við
allar saman. Og Erla má ekki beila þó að þetta verði hryllingsmynd
en ekki rómantísk gamanmynd hehe
Æji Ísak er orðinn svo þreyttur strax aftur þannig við ætlum að
fara að kúra okkur...engin mynd í þetta skiptið 
»
10.07.2007 22:48:28 / katrin
Írskir dagar eru búnir búhúú Og ég sem var sko búin að
panta að fara á lopapeysuballið áður en Ísak Hrafn fæddist fékk enn
eina ferðina nýrnastein!!!! Það stoppaði mig hinsvegar ekkert og ég
skellti mér á Stuðmenn með Arnari og Önnu Kristinu á föst. Ísak
svaf bara í vagninum í góðum gír eins og alltaf. Það elti okkur svo
fullasti maður sem ég hef séð og kallaði bara Katríín á eftir
okkur. Ég hef ekki hugmynd um hver þetta var og skilst að þetta
hafi verið pólverji Er enn að reyna að átta mig á því hvernig
hann veit hvað ég heiti 
Laugardagurinn var ekki góður. Tók 3 voltaren og 5 parkodín
forte. Missti af grillinu sem var hérna á heimilinu en Arnar færði
mér smá inní rúm:/ Var svo dösuð að ég gubbaði næstum útá stétt, og
stuttu eftir það komu Anna og Imba og drógu mig með sér uppí sveit
á Melinn. Úff... Það var reyndar frekar mikið stuð því að Kristín
var með í för og ég hef ekki djammað með henni síðan á síðustu
lopapeysu ef ég man rétt..ég drakk nu samt tvo bjóra og leið einsog
eftir 12 eða eitthvað þarna á tímabili, en svo varð ég
venjuleg aftur. Finnst það bara best, kann ekkert að vera undir
áhrifum áfengis eftir svona langa pásu  
Heyrðu svo er ég búnað sjá Pæró og ég skil ekkert hvaða stælar
það eru i fólki að segja að hún sé léleg!! Soldið ruglingsleg sagan
kannski, en skemmtileg mynd samt sem áður og kommon...Johnny Depp
leikur í henni!! Þarf eitthvað meira? 
Bumbi og Ani eru síðan að fara á Þjóðhátíð. Ég er frekar abbó,
en beiti bara reiði minni að Arnari í staðinn. Alltaf hægt að gera
gott úr því 
Ég skellti mer svo á völlinn áðan eins og ég er vön og Ísak fékk
aðeins að koma uppúr vagninum og sat bara hjá mér í gúddí og lét
ekki heyrast múkk i sér Stilltasta barn í heimi, alveg eins og
mamma sín 
Og af því að ég er óð mamma þá get ég ekki sleppt þvi að hafa
myndir af honum með 
Fallegastur :*

»
28.06.2007 18:57:32 / katrin
Ég er búin að vera að fylgjast doldið með ákveðnu máli á netinu
undanfarið.
Það var semsagt þannig að hundurinn Lúkas (Chinese Crested) týndist frá eiganda sínum á
Akureyri þann 28. mái síðastliðinn. Það var gerð dauðaleit að
hundinum, hann auglýstur útum allt og svona, en hann lét sko ekki
ná sér en það sást þó oft til hans.
Eigendurnir voru auðvitað miður sín yfir þessu og var mikið rætt
um það á netinu að hann yrði örugglega rosalega kvektur því það
voru bíladagar á Akureyri um daginn.
Heyrðu, svo sést til nokkurra gaura með hundinn á bíladögum. Og
ég tek það fram að mörg vitni hafa gefið sig fram!!. Einn gaurinn
segist semsagt ætla að eiga hundinn, og er að vesenast
eitthvað með hann... en ákveður síðan á laugardeginum að troða
honum ofan í íþróttatösku og sparka honum um þangað til að hann er
allur!!!!
Getiði ímyndað ykkur hrottaskapinn í fólki!!! Djöfulsins
aumingjar sem gera svona lagað.. og ég veit að það er búið að ræða
þetta alveg svakalega mikið á netinu, og margir dýravinir hafa
alveg misst sig, sem ég skil svosem alveg. Get ekki alveg ímyndað
mér mín viðbrögð ef þetta hefði verið Tása
Ég ætla ekkert að vera að nafngreina þenna hálfvita en þetta er
svona plebbi sem segir að áhugamálin hans séu bílar, drekka sig
ógeðslega fullan og reyna við allar smápíkur sem hann sér, og svo
segir hann auðvitað fótbolti!! Pff helvítis aumingi bara...og þetta
er manneskja sem er 21 árs!!! Ég er enn algjörlega í sjokki yfir að
fullorðin manneskja geri svona, eða hvað þá bara einvher manneskja
yfir höfuð!!! 
Eigandinn er búinn að kæra þetta til lögreglu með myndbandið og
fjölmörg vitni sem stuðning. Og ég vona svo sannarlega að þessir
helvítis plebbaaumingjar fái refsingu....
sem mér finnst þó því miður ansi hæpið þegar að barnanauðgarar
sleppa nær alltaf með smá sekt!!!    
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|